Börkur hf. - Gluggar, hurðir, bílskúrshurðir, gler og karmar

Börkur hf. er leiðandi fyrirtæki í framleiðslu glugga og hurða. Öll framleiðsla fyrirtækisins er vottuð af Rannsóknarstofu Byggingariðnaðarins.

Velkomin(n)

 



Trésmiðjan Börkur hf. lýtur að fullu reglum um gæðavottun Rannsóknarstofu byggingariðnaðarins
á öllum þeim gerðum glugga og hurða sem fyrirtækið framleiðir.

Við höfum verið leiðandi á framleiðslu á íslenskum hurðum og gluggum í yfir 30 ár og búum yfir einni fullkomnustu verksmiðju landsins.

Við sérsmíðum allar tegundir eftir óskum. Hurðir, rennihurðir, bílskúrshurðir, útidyrahurðir, gler, og glugga.

 Söluskrifstofa Barkar hf. Njarðarnesi 3-7, 603 Akureyri 

 

  •  Opnunartími: 8.00 til 12.30 og 13.00 til 16.00 alla virka daga.

 

   Söluskrifstofa Barkar hf. Smiðjuvegi 2, 200 Kópavogi 

  • Opnunartími: 9.00 til 17.00 alla virka daga.
Aðalsímanúmerið hjá Berkinum er 455-1900. Ef óskað er eftir tilboðum er bent á að senda tölvupóst á borkur@borkur.is  

Ef óskað er eftir upplýsingum tengt reikningum og bókhaldi er best að senda póst á bokhald@borkur.is
 
Sölumenn Akureyri s. 455-1900

Gunnar Atli Fríðuson 
gunnar@borkur.is
Beinn sími 455-1907


Sölumenn höfuðborgarsvæðis s. 455-1900

Berglind Gunnarsdóttir 
berglind@borkur.is
Beinn sími 455-1909


Framleiðsla & rekstur:

Halldór Atlason 
halldor@borkur.is
Beinn sími 455-1908



Nýjustu fréttir

Leiðandi fyrirtæki í íslenskri glugga og hurðavinnslu

Börkur hf. Leiðandi fyrirtæki í innlendri glugga og hurðavinnslu.

Við starfsfólk Barkar hf. viljum með stolti geta þess að við urðum í 111 sæti yfir best reknu fyrirtæki á öllu landinu og í 9 sæti yfir best reknu meðalstór fyrirtæki á árinu 2018.

Við óskum öllum okkar viðskiptavinum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs og þökkum öllum þeim fyrirtækjum og einstaklingum sem hafa valið íslenska gæðaframleiðslu Barkar hf. á liðnu ári.

Einnig óskum við landsmönnum öllum gleðilegra jóla og þökk fyrir liðið ár.

Starfsfólk Barkar hf.


Þrjár nýjar vélar í vinnslusal okkar:

SCM TL 5 Invincibile
Þrjár nýjar vélar voru að bætast við í vélasal okkar og eru þær að leysa af hólmi eldri vélar sem komnar voru til ára sinna.  
Einnig var formlega í byrjun árs tekin í notkun lagerviðbygging við verksmiðju okkar.
Seinna á árinu bætast svo við vélar tengdar glerjun og frágangi.

Skipalón 1-7 í Hafnarfirði

Fallegt hverfi með Barkar ál-tré gluggum
Risið hefur á undanförnum árum fallegt hverfi við Skipalón 1-7 í Hafnarfirði. Gluggar eru ál-tré gluggar frá Berki hf. Allt innlend framleiðsla í góðum gæðum. 
Byggingaverktaki er Fjarðarmót ehf sem hefur keypt glugga frá Berki hf til fjölda ára og verið einn af okkar bestu kúnnum.
Óskum við þeim til hamingju með þetta fallega hverfi.

30 farsæl ár í gluggum og hurðum.



Börkur hf. náði þeim merka áfanga að verða 30 ára nú um áramótin.

Við Alexander, Hilmar, Ingimar og Snorri og okkar konur höfum starfað saman í öll þessi ár og átt farsælt samstarf þótt á ýmsu hafi gengið í íslenskum byggingariðnaði þessi ár. 
Tíminn hefur liðið hratt og við orðnir aðeins lífsreyndari, en sami óbilandi krafturinn drífur okkur áfram.

Á þessum tímamótum höfum við tekið í notkun nýja birgðarskemmu fyrir lager okkar og keypt inn þrjár nýjar vélar sem eru að bætast inn í vélasal okkar þessa dagana.

Við viljum þakka okkar frábæra starfsfólki sem unnið hefur hjá okkur og sumir öll okkar starfsár. Án þeirra væri ekki hægt að byggja upp svona öflugt fyrirtæki.

Einnig viljum við þakka okkar viðskiptavinum sem margir hafa skipt við okkur í áratugi. Án þeirra væri þetta heldur ekki hægt.

Börkur hf ber árin vel og eflist vonandi áfram með hverju ári sem líður því stígandi lukka er best.

Kveðja til allra á þessum tímamótum.
Alli, Hilli, Ingi og Snorri.


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn